SPRON

Mikið gladdi okkur fregn gærdagsins um að MP hefði keypt SPRON og Netbankann og ætlaði að opna þrjú af útibúunum eftir helgi. Við vorum í viðskiptum við Spron í 30 ár, bæði með stofnunina sem við stýrðum sem og persónuleg viðskipti. Það bar aldrei skugga á samstarfið.

Eftir að umsetningin minnkaði vorum við þar áfram og nutum einstakrar umhyggju af þjónustufulltrúa okkar, Ragnheiði Ragnarsdóttur, sem síðast var titluð viðskiptastjóri. Fyrst í Hátúni og síðan í Borgartúni. Frábær þjónusta og umhyggja og gagnkvæmt traust.

Nú sjáum við fram á að við getum tengst SPRON aftur eftir helgi og vonandi Ragnheiði. Fari það svo verðum við ákaflega sátt við lausnina á bankaóvissunni sem yfir okkur hefur hangið.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.