Nostos, blóm og myndir

Liðin helgi einkenndist af veðurblíðu. Við nutum þess út í æsar, gamla settið, uppi í Borgarfirði að vanda. Þangað leitum við sífellt. Kannski er það nostalgía, nostos á grísku, að snúa heim eða til baka. Eða þá þrá eftir endurhljómi tilfinninga sem hófust í æsku og bjó um sig í hjörtunum. Það er ekki einfalt að orða þetta.

Fyrsta myndin var tekin 1952 við rætur Strúts. Það var löngu fyrir digital. Í tilefni andláts Magnúsar á Gilsbakka og útfarar hans laugardaginn 20. júní birti ég myndina. Smellið á myndirnar.

Á myndinni eru Ásta, 10 ára, Óli Ágústar, 15 ára, Vilhjálmur Ingvarsson, 11 ára, Magnús á Gilsbakka, 26 ára.
Myndin er tekin 1952 og henni eru Ásta 10 ára, Óli Ágústar 15 ára, Vilhjálmur Ingvarsson 11 ára, Magnús Á Gilsbakka 26 ára.
Ásta ræktar garðinn...
Ásta ræktar garðinn...
...og ákvarðar um liti.
...og ákvarðar um liti.
Himininn leggur til dögg.
Himininn leggur til dögg.
Ný fegurð á hverju sumri...
Ný fegurð á hverju sumri...
...og garðurinn helst í rækt.
...og garðurinn helst í rækt.

4 svör við “Nostos, blóm og myndir”

  1. Þakka þér fyrir að líta við á síðunni minni Katrín.
    Margar góðar minningar okkar Ástu tengjast Gilsbakka. Því miður er ekki mikið til af myndum frá þeim tímum og þær yfirleitt teknar á frumstæðar kassamyndavélar svo að erfitt er að vinna með þær.

  2. Sérstaklega gaman að efstu myndinni, hana hef ég ekki séð áður. Ég lít stundum inn á bloggið þitt, takk fyrir að fá að lesa.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.