Atlantsolía – allt í plati

Í gærmorgun fékk ég SMS frá Atlantsolíu. Þeir óskuðu mér til hamingju með afmælisdaginn og í tilefni hans buðu þeir mér 5 kr. afslátt á lítra af bensíni. Ekki leist mér á tilboðið.

Bíllinn minn eyðir um 11 lítrum á hundraðið. Til að aka að bensíntanki, u.þ.b.10 km. fram og til baka, þarf að minnsta kosti 1,1 ltr. bensín. það er kr. 166 x 1.1 = kr. 182.60.

Hefði ég keypt 40 lítra ( færi eftir stöðunni á tankinum) hefði afslátturinn, umfram 2 krónurnar með lyklinum, það er 3 krónur, gert 120 krónur.

Dæmið liti þá svona út í krónum: 182.60 – 120.00 = 62.60. Afmælisgjöfin hefði semsagt verið til Atlantsolíu kr. 62.60 en alls ekki til mín.

Þetta kalla ég allt í plati.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.