Himnaríki og helvíti

Helgur maður var í viðræðum við Guð og sagði:
Guð, mig langar að vita hver munurinn er á himnaríki og helvíti.

Við svo búið fór Guð með manninn að tvennum dyrum.
Hann opnaði aðra þeirra og hinn helgi maður leit inn.
Í miðju herbergisins var stórt hringlaga borð.
Á miðju borðsins var stór pottur með pottrétti sem ilmaði svo vel að
hinn helgi maður fékk vatn í munninn.
Fólkið sem sat við borðið var horað og veiklulegt.
Það leit út fyrir að vera að svelta í hel.

Fólkið hélt á skeiðum með löngu handfangi og hendur þeirra voru
bundnar við stólana en þó gátu þau veitt matinn upp úr pottinum með
skeiðinni. En þar sem handföngin á skeiðunum voru lengri en hendur
þeirra þá gátu þau ekki komið matnum úr skeiðinni upp í sig.
Hinn helgi maður varð undrandi á þeirri eymd og þjáningu sem við honum
blasti. Guð sagði, ‘Þú hefur nú séð inn í helvíti.’

Síðan fóru þeir að næstu hurð og opnuðu hana.
Við blasti sama sjón og í fyrra herberginu.
Stórt hringlaga borð með stórum potti fullum af pottrétti sem einnig
varð til þess að hinn heilagi maður fékk vatn í munninn.
Fólkið hafði sama búnað, þ.e. skeiðar með löngu handfangi.
Munurinn var hins vegar sá að þetta fólk var vel haldið,
kátt,hresst og talaði saman.

Þetta sagðist hinn helgi maður ekki skilja.
Þetta er einfalt, sagði Guð.
En það krefst eins hæfileika.
Eins og þú sérð þá hefur þetta fólk lært að mata hvert annað á meðan
að hinir gráðugu hugsa eingöngu um sjálfan sig.

Eitt andsvar við „Himnaríki og helvíti“

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.